AIC – ÍSLAND / ICELAND
Isavia ANS ehf., Reykjavíkurflugvelli, 102 Reykjavík /
Isavia ANS, Reykjavik Airport, IS-102 Reykjavik, Iceland
Sími / Telephone: + 354 424 4000
ais@isavia.is
http://www.isavia.is/ 

 
AIC A 006 / 2017
Effective from  28 APR 2017
Published on 28 APR 2017
 

 
Flug við vetraraðstæður /
Winter flying
 

Efnisleg ábyrgð: Samgöngustofa

1 Flug við vetraraðstæður

1.1 Undirbúningur flugs

Að mörgu er að huga þegar veturinn nálgast. Sagan kennir okkur að koma hefði mátt í veg fyrir mörg óhöpp og slys í vetraflugi ef undirbúningur flugs hefði verið við hæfi.

Loftför, sem flogið er yfir landsvæðum sem eru mjög erfið til leitar og björgunar skulu búin merkja- og björgunarbúnaði, þ.m.t. lífsviðhaldsbúnaði (survival equipment), eftir því sem við á fyrir það svæði sem flogið er yfir. Fjallað er um lágmarksbúnað um borð í loftförum í reglugerð um starfrækslu loftfara nr. 237/2014 sem er aðgengileg á heimasíðu Samgöngustofu.

Þess eru dæmi að flugmenn í yfirlandsflugi að vetri séu í léttum sumarklæðnaði sem samræmist hvorki ofangreindri reglugerð né heilbrigðri skynsemi.

Mikilvægt er að flugmenn kynni sér upplýsingar í handbók loftfara varðandi flug við vetraraðstæður. Jafnframt er mikilvægt að flugmenn séu meðvitaður um veðuraðstæður og spár áður en farið er í flug. Þá er mikilvægt að flugmenn afli sér upplýsinga um ástand fyrirhugaðra lendingarstaða og hafi viðeigandi lífsviðhaldsbúnað um borð.

Á árunum 2002 til 2015 urðu a.m.k. 11 flugslys og óhöpp á Íslandi við vetraraðstæður þar sem undirbúningur og ákvarðanataka flugmanns voru meðvirkandi þáttur í framangreindum flugslysum og óhöppum.

1.2 Aðstæður

Hvítablinda, hálka/snjór á lendingarstöðum, holklaki á óundirbyggðri braut, éljagangur, ísing o.fl. kemur þar við sögu.

Hvítablinda getur myndast í skafrenningi, snjókomu og þegar dreifing birtu á snæviþakta jörð myndar enga skugga. Hvítablinda gerir ekki boð á undan sér.

Ástand snæviþakinna flugbrauta er eingöngu hægt að kanna á jörðu niðri en ógerlegt að meta úr lofti.

Holklaki getur myndast í frosti í brautum sem ekki eru undirbyggðar. Þar geta leynst holur þó yfirborðið sé slétt að sjá.
Yfirborð slíkra brauta getur einnig orðið hættulega mjúkt þegar hitastig fer vel yfir frostmark.

Í éljagangi, í staðbundnum (local) flugum, er skynsamlegt að fljúga áveðurs við flugvöllinn ef aðstæður leyfa svo hægt sé að hörfa undan éli til lendingar. Nokkur dæmi eru um óvænt yfirlandsflug þegar flugmenn hafa þurft að hörfa undan éljum á milli þeirra og flugvallar

Ómögulegt er að meta af öryggi hæð yfir snæviþöktu landi sem og vatni og dökkum sandi og því óraunhæft að treysta eigin mati. Nauðsynlegt er að flugmenn kynni sér landhæð á korti og beri saman við flughæð.

Sérstaklega þarf að vanda undirbúning flugs á flugvélum sem standa úti. Tryggja þarf að það sé engin ísing sem getur haft áhrif á afkastagetu flugvélar og mælitækja. Ef flugvél stendur úti með lítið eldsneyti á tönkum getur myndast raki (slagi) á innra borði tankanna sem síðan þéttist í vatn í eldsneytinu.

Í veðurstillu á köldum vetrardegi getur hitastig í flughæð yfir hitahvörfum verið nokkuð hærra. Við slíkar aðstæður geta myndast aðstæður fyrir frostrigningu.

Skynsamlegt er að leggja inn flugáætlun hjá Flugumferðarþjónustu, þó þess sé ekki krafist, í samræmi við AIP ENR 1.10.1 til þess að tryggja viðbúnaðarþjónustu.

 


Upplýsingabréf fellt út gildi: / AIC hereby cancelled:  
Ekkert / NIL

 


Efni eftirfarandi NOTAM skeyta birt í þessu upplýsingabréfi: / NOTAM incorporated in this AIC:
Ekkert / NIL

 


ENDIR / END